Marc Inbane La Hydratan rakakrem
MARC INBANE La Hydratan er lúxus rakakrem sem hentar til daglegrar notkunar á hreina húð. Það viðheldur eðlilegum raka húðarinnar og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins.
La Hydratan dagkremið inniheldur Bronzyl® sem tryggir að húðin heldur lengur lit hvort sem er frá sól eða okkar náttúrulegu sjálfbrúnkuvörum. Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. La Hydratan inniheldur háþróaða UV vörn sem veitir húðinni vernd gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.
Náttúrulegu plöntuþykkni er bætt við vegna mýkjandi og róandi eiginleika þess og gefur það einnig jafna og fallega áferð. Rakakremið er án olíu og er ríkt af vítamínum, gefur húðinni meiri fyllingu og aukinn ljóma. Með notkun kremsins endurheimtir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og heilbrigði. Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
Kostir La Hydratan
Dagkrem sem lengir endingartíma brúnkunnar
SPF10 hjálpar til við að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar og áreiti umhverfisins
Veitir vörn gegn ótímabærri öldrun
Sannreynt og prófað af húðlæknum
Vegan
Án parabena
Hentar öllum húðgerðum
Án olíu
Lofttæmdar umbúðir
Gott ráð
Til að ná sem bestum árangri er gott að nota djúphreinsinn frá MARC INBANE að minnsta kosti einu sinni í viku. Djúphreinsirinn er sótthreinsandi og fjarlægir óhreinindi, dauðar húðfrumur sem og þurrkubletti. Hann eykur líka blóðflæði og örvar endurnýjun húðarinnar. Þar sem yfirborð húðarinnar verður jafnara og sléttara verður liturinn líka jafnari og helst mun lengur.
Magn: 30 ml.
Berið á andlit og háls kvölds og morgna fyrir heilbrigða og ljómandi húð.
Nuddið varlega í húðina til þess að fá alla þá virkni út úr vörunni sem hún býður upp á.