Gentle Body skrúbb
Gentle Body Scrub er hannaður til að gefa þér milda skrúbbun á líkamanum.
Varan inniheldur sjávarsalt og apríkósukjarnamjöl, sem skrúbbar húðina á mildan máta og fjarlægir dauðar húðfrumur. Í skrúbbnum má einnig finna laurínsýru sem er bólgueyðandi og sæta möndluolíu sem gefur raka og hefur mýkjandi áhrif á húðina.
100% vegan og án viðbættra ilmefna. Helstu innihaldsefni eru sjávarsalt, apríkósukjarnamjöl, laurínsýra, sítrónusýra, sætmöndluolía og E-vítamín.
Magn: 300 ml
Vörumerki: Sanzi
Eftir að hafa þvegið húðina skaltu nudda Gentle Body Scrub varlega inn í húðina í hringlaga hreyfingum. Mundu að láta vöruna vinna verkið með því að nudda ekki of fast á húðina. Skolið með volgu vatni og endið svo á Enriched Body Lotion eða Nourishing Body Oil.