Marc Inbane brúnkudropar

Perle de Soleil brúnkudropar

Perle de Soleil brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru fullkomnir til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma og náttúrulegri brúnku sem er sérsniðin að óskum hvers og eins. Náttúrulegur litur á augabragði. Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun - þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku.

Gott ráð

Til að ná sem bestum árangri gott að nota svarta skrúbbinn frá MARC INBANE að minnsta kosti einu sinni í viku. Skrúbburinn, sem er sótthreinsandi, fjarlægir óhreinindi, dauðar húðfrumur sem og þurrkubletti. Skrúbburinn eykur líka blóðflæði og örvar endurnýjun húðarinnar. Þar sem yfirborð húðarinnar verður jafnara og sléttara við notkun á skrúbbnum þá verður liturinn líka jafnari og helst mun lengur.

Varúð

Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir innihalda ekki SPF og veita því ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. Aðeins ætlað til útvortis notkunar. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Allar vörur frá MARC INBANE eru án parabena.

Magn: 15 ml
Vörumerki: Marc Inbane

7.690 kr 7690.0 ISK
in stock
7.690 kr

7.690 kr


    Þessi samsetning er ekki til.

    Bæta í körfu



    Deila þessari vöru:

    Mikilvægt er að passa uppá að húðin sé hrein áður en þú berð kremblönduna á þig.

    Settu það magn sem þú notar venjulega af rakakremi/líkamskremi eða sólarvörn í lófann.

    Blandaðu svo örfáum brúnkudropum saman við kremið og berðu blönduna jafnt á húðina.

    Til að viðhalda litnum notar þú 1-2 dropa en 3-4 dropa til að dekkja litinn.

    AQUA, DIHYDROXYACETONE, ALCOHOL DENAT., ERYTHRULOSE, DIMETHYL ISOSORBIDE, CARAMEL, PARFUM, PEG-40 HYDROGENATED CASTOR OIL, BENZOIC ACID, CI 16035, TRIDECETH-9, PROPYLENE GLYCOL, XANTHAN GUM, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, DEHYDROACETIC ACID, BUTYLPHENYL METYLPROPIONAL, CITRONELLOL, COUMARIN, GERANIOL, HYDROXYCITRONELLAL, LINALOOL, PHENOXYETHANOL 

    Skoðað nýlega