Clarifying húðolía
Fyrir olíumikla og óhreina húð. Hreinsandi dagolía sem hjálpar óhreinni húð að ná jafnvægi. Blanda af hreinum náttúrulegum olíum sem koma til móts við óhreinindi og olíumikla húð. Olían er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla feita húð í ójafnvægi. Með því að gefa húðinni olíu náum við að róa og minnka ólíuframleiðslu húðarinnar. Olían dregst auðveldlega inn í húðina og skilur ekki eftir sig slikju á húðinni. Auðveld í notkun, hægt að nota eina og sér eða yfir önnur dagkrem frá Dr. Hauschka fyrir auka vernd yfir vetrartímann.
Magn: 18 ml
Vörumerki: Dr. Hauschka
Á morgnana eftir hreinsun setja nokkra dropa af olíunni í lófa og bera létt á andlit, háls og bringu. Gott að láta olíuna bíða í nokkrar mínútur áður en farði er settur yfir. Einnig er hægt að nota yfir dagkrem fyrir meiri vörn á veturna eða blanda í dagkremið fyrir þá sem kljást við blandaða eða olíumikla húð.